Örn Árnason
Örn Árnason (f. 19. júní 1959 í Reykjavík) er íslenskur leikari, einn af meðlimum Spaugstofunnar og lék hann eitt sinn Afa í sjónvarpsþættinum Með Afa á Stöð 2. Örn er sonur Árna Tryggvasonar leikara.
Örn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982. Í Þjóðleikhúsinu hefur Örn leikið fjölmörg eftirminnileg hlutverk eins og Lilla í Dýrunum í Hálsaskógi, Jónatan, Jesper og Kasper í Kardemommubænum, Max í Hallæristenórnum, Leikarann í Gamansama harmleiknum og Geir Vídalín í Gleðispilinu. Hann lék Bangsapabba í Dýrunum í Hálsaskógi og ýmis hlutverk í Klaufum og kóngsdætrum. Meðal nýlegra verkefna hans hér eru Slá í gegn, afmælissýning Spaugstofunnar Yfir til þín – Spaugstofan 2015 (þar sem hann lék og var einn handritshöfunda), Umhverfis jörðina á 80 dögum, Óvitar, Spamalot, Dýrin í Hálsaskógi, Tveggja þjónn, Ballið á Bessastöðum og Bjart með köflum. Meðal annara verkefna var Harry og Heimir í Borgarleikhúsinu sem hann samdi og lék í ásamt Sigurði Sigurjónssyni og Karli Ágústi Úlfssyni. Örn hefur talsett fjölda teiknimynda bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús og var einn stofnenda talsetningarfyrirtækisins Hljóðsetning. Örn hefur unnið við sjónvarpsþáttagerð um margra ára skeið og má þar nefna þættina um Afa, Imbakassann og Spaugstofuna. Örn gaf út plötuna Afi á sjóræningjaslóðum fyrir nokkrum árum og hefur sungið inn á nokkrar hljómplötur.[1]
Verk
[breyta | breyta frumkóða]Ferill í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Örn Árnason“. Þjóðleikhúsið (bandarísk enska). Sótt 20. september 2020.