Stella í orlofi
Stella í orlofi | |
---|---|
Leikstjóri | Þórhildur Þorleifsdóttir |
Handritshöfundur | Guðný Halldórsdóttir Larry Wachowski |
Framleiðandi | Umbi |
Leikarar | |
Frumsýning | 1986 |
Lengd | 84 mín. |
Tungumál | íslenska |
Aldurstakmark | Leyfð |
Framhald | Stella í framboði |
Stella í orlofi er íslensk kvikmynd, frumsýnd 18. október 1986. Hún fjallar um Stellu sem fer í sumarbústað með sænskum alka sem var á leiðinni í meðferð hjá SÁÁ. Þau lenda í alls kyns vandræðum á ferðum sínum. Međ aðalhlutverk fara þau Edda Björgvinsdóttir, Gestur Einar Jónasson, Þórhallur Sigurðsson, Sólveig Arnarsdóttir, Björgvin Franz Gíslason og Unnur Berglind Guðmundsson.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Handritshöfundur er Guðný Halldórsdóttir.
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Stella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðillsku karla, tryllt börn, alkóholista, flugmenn, Læjonsklúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi. Georg ætlar að fara í veiðiferð með erlendum viðskiptafélaga. En þegar hann handleggsbrotnar og endar á spítala ákveður Stella konan hans að taka til sinna ráða. Hún fer á flugvöllinn og finnur Salomon sem er viðskiptafélagi Georgs og fer með hann í veiðiferð í Selá. En Salomon er alls ekki viðskiptafélagi Georgs. Hann er alkóhólisti og er kominn til Íslands til að fara í meðferð hjá SÁÁ. Út af þessum misskilningi fara Salomon, Stella og börnin hennar öll í veiðiferð í Selá.[1]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Stella í orlofi, sótt 15. febrúar 2020