Trịnh Tạc
Trịnh Tạc (hán tự: 鄭柞; 1606 – 1682) ríkti yfir Norður-Víetnam frá 1654 til dauðadags. Hann batt endi á Trịnh–Nguyễn-stríðið með því að semja frið við Nguyễn-lávarðana. Hann lagði líka undir sig Cao Bằng sem var síðasta landsvæðið undir stjórn Mạc-ættarinnar sem hraktist til Kína.