Rosario
Útlit
Rosario er stærsta borg í héraðinu Santa Fe í Argentínu. Borgin er um 300 km norðvestur af Buenos Aires, á vesturbakka Paraná-fljóts og er skipgengt þangað. Borgin er sú þriðja fjölmennasta í landinu með áætlaða 1,7 milljón íbúa (2020). Nýklassískur stíll einkennir eldri hluta borgarinnar.
Þekktir íbúar
[breyta | breyta frumkóða]- Che Guevara, byltingarsinni
- Lionel Messi, knattspyrnumaður
- Ángel Di María, knattspyrnumaður