Sigfús M. Johnsen
Útlit
Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen (28. mars 1886 – 9. janúar 1974) var frá húsinu Frydendal í Vestmannaeyjum. Hann var lögfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla og útskrifaðist þaðan árið 1914.
Hann var í um þrjátíu ár fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík. Árið 1940 varð hann bæjarfógeti í Vestmannaeyjum.
Hann skrifaði nokkrar bækur, svo sem Saga Vestmannaeyja (1946), Herleidda stúlkan (1960), Uppi var Breki: Svipmyndir úr Eyjum (1968) og Yfir fold og flæði (1972).
Eiginkona Sigfúsar, Jarþrúður P. Johnsen, starfaði mikið og farsællega að ýmsum félagsmálum í Vestmannaeyjakaupstað og gat sér góðan orðstír fyrir þau störf.