Kefeifur (stjörnumerki)
Útlit
Kefeifur (latína: Cepheus) er fremur stórt stjörnumerki nálægt nyrðra himinskautinu. Þetta er eitt af 48 stjörnumerkjum fornaldar sem Kládíus Ptólmæos skráði á 2. öld. Það dregur nafn sitt af sagnkonunginum Kefeifi sem kemur fyrir í sögum um Perseif.
Bjartasta stjarna merkisins er Delta Cephei sem sefítar draga nafn sitt af.