Nothing Special   »   [go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Elon Musk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Elon Musk
Elon Musk árið 2018.
Fæddur28. júní 1971 (1971-06-28) (53 ára)
ÞjóðerniSuður-afrískur, kanadískur og bandarískur
MenntunPennsylvaníuháskóli (BA, BS)
StörfAthafnamaður
MakiJustine Wilson (g. 2000; sk. 2008)
Talulah Riley (g. 2010; sk. 2012; g. 2013; sk. 2016)
Grimes (í sambúð 2018–2021)
Börn10
Undirskrift

Elon Reeve Musk fæddist 28. júní 1971 í Suður-Afríku, er suður-afrískur og bandarískur eðlisfræðingur, athafnamaður og fjárfestir. Hann er stofnandi, forstjóri og yfirverkfræðingur flug- og geimferðafyrirtækisins SpaceX; , forstjóri rafbílafyrirtækisins Tesla, Inc.; eigandi og forstjóri Twitter, Inc.; stofnandi The Boring Company; með-stofnandi Neuralink og OpenAI.

Musk var talinn 21. af áhrifamesta fólki heims á lista Forbes frá 2016. Hann var 23. ríkasta manneskja heims árið 2020. Í janúar árið 2021 var hann metinn ríkasti maður í heimi[1] en hann féll niður um sæti næsta mánuð eftir lækkun á hlutabréfaverði Tesla.[2] Hann var aftur metinn ríkasti maður heims undir lok ársins.

Tímaritið Time valdi Musk sem mann ársins árið 2021.[3]

Elon Musk fæddist í Suður-Afríku árið 1971. Faðir hans, Errol Musk, er verkfræðingur og athafnamaður sem á meðal annars smaragðanámu í Sambíu. Móðir hans, Maye, er fyrirsæta og næringarfræðingur. Musk ólst upp við töluvert ríkidæmi í Suður-Afríku. Þegar foreldrar hans skildu ákvað Musk að búa áfram með föður sínum.[4] Musk flutti til móður sinnar í Kanada þegar hann var sautján ára til að komast hjá því að gegna herskyldu í suður-afríska hernum. Hann flutti frá Kanada til Bandaríkjanna og hóf doktorsnám við Stanford-háskóla þegar hann var 24 ára gamall en hætti eftir aðeins tvo daga.[5]

Árið 1995 stofnaði Musk fyrirtækið Zip2, sem sá um fyrirtækjaskráningar, með 28 þúsund Bandaríkjadollurum í stofnfé frá föður sínum. Hann seldi fyrirtækið fjórum árum síðar fyrir 307 milljónir dollara. Árið 1999 stofnaði hann X.com, sem sameinaðist síðar Confinity og varð að PayPal. Musk og aðrir eigendur þess seldu PayPal fyrir einn og hálfan milljarð dollara árið 2002.[4]

Árið 2022 sló Musk það heimsmet að tapa meiri fjármunum á einu ári en nokkur annar. Hann tapaði 165 millj­örðum banda­ríkja­dala frá nóv­em­ber 2021 til des­em­ber 2022 vegna hruns í andvirði Teslu.[6]

Árið 2022 keypti Musk samfélagsmiðilinn Twitter fyrir 44 milljarða Bandaríkjadala eða tæplega 5.700 milljarða íslenskra króna.[7]

Athygli vakti árið 2023 þegar Haraldur Þorleifsson, athafnamaður, sendi Musk skilaboð um stöðu sína hjá fyrirtækinu en hann virtist ekki lengur vera starfsmaður Twitter og lokað var fyrir aðgang hans. Í mars sendi hann Musk spurningu á Twitter um uppsögn sína og fékk síðar staðfestingu á því frá mannauðsstjórn fyrirtækisins. Musk var á því að Haraldur þjónaði ekki nokkrum mikilvægum störfum á Twitter sem kallað gæti og væri að bera fyrir sig fötlun. Musk baðst síðar afsökunar og sagðist hafa fengið rangar upplýsingar og bauð honum að halda áfram hjá fyrirtækinu.[8]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Sylvía Hall (7. janúar 2021). „Musk tekur fram úr Bezos“. Vísir. Sótt 8. janúar 2021.
  2. „Ekki ríkastur lengur eftir lækkun Tesla“. Viðskiptablaðið. 23. febrúar 2021. Sótt 24. febrúar 2021.
  3. Þorvarður Pálsson (13. desember 2021). „Elon Musk valinn maður ársins“. Fréttablaðið. Sótt 13. desember 2021.
  4. 4,0 4,1 Jón Ferdínand Estherarson (7. febrúar 2024). „Skuggar og skaði eins valdamesta manns heims“. Heimildin. Sótt 7. september 2024.
  5. Ólöf Ragnarsdóttir (26. apríl 2022). „Auðkýfingurinn sem vill kaupa Twitter“. RÚV. Sótt 7. september 2024.
  6. „Enginn tapað meiri auðæfum“. mbl.is. 12. janúar 2023. Sótt 13. janúar 2023.
  7. Georg Gylfason (25. apríl 2022). „Kaup Elon Musk á Twitter stað­fest“. Fréttablaðið. Sótt 10. apríl 2022.
  8. Musk segir Harald áfram á launum hjá Twitter og biðst afsökunar Rúv, sótt 8/3 2023
  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.