Grímuskríkja
Útlit
Grímuskríkja | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Karlfugl
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Geothlypis trichas Linnaeus, 1766 | ||||||||||||||
Útbreiðslukort. Gulur: Varpstaðir. Blár: Veturseta. Grænn: Staðfugl
|
Grímuskríkja (Geothlypis trichas) er spörfugl sem er útbreiddur í Norður-Ameríku og Mið-Ameríku. Hann á varpstöðvar lengst í norður-Kanada. Baksíða fuglsins er ólífugræn, bringa gul og magi hvítur. Karlfuglar hafa svart andlit. Lengd grímuskríkju er 11-13 sentimetrar og er þyngd hennar aðeins 8-9 grömm.
Fuglinn er flækingur á Íslandi og fannst hér fyrst 1997 á Reykjanesskaga. [1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Grímuskríkja finnst hér Mbl.is, sótt 11. okt. 2022
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist grímuskríkju.
Wikilífverur eru með efni sem tengist grímuskríkju.