Conchita Wurst
Conchita Wurst | |
---|---|
Fæddur | Thomas Neuwirth 6. nóvember 1988 |
Störf | Söngkona |
Thomas „Tom“ Neuwirth (f. 6. nóvember 1988), sem er betur þekktur sem hún Conchita Wurst, er Austurrískur söngvari. Conchita Wurst sigraði fyrir hönd Austurríkis í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014 í Kaupmannahöfn, Danmörku með 290 stig. Wurst kýs að nota kvenkyns fornöfn þegar talað er um sig.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Neuwirth fæddist í Gmunden í Austurríki, árið 1988. Áður en að fara í drag vann Neuwirth við gluggaskreytingar, en birtist fyrst í fjölmiðlum í auglýsingu árið 2006. Árið 2007 komst Neuwirth í úrslit í Austurríska hæfileikaþættinum Starmania. En árið 2011 sneri Neuwirth aftur í sjónvarpið sem dragpersónan "Conchita Wurst". Conchita Wurst tók þátt í þættinum The Hardest Jobs of Austria, þar sem hún vann í fiskvinnslustöð, og í þættinum Wild Girls, þar sem hópur sjálfboðaliða þurfti að þrauka í óbyggðunum í Namibíu með innfæddum. Wurst var í dragi í þættinum.
Neuwirth útskrifaðist úr Tískuskólanum í Graz árið 2011, og hefur búið á ýmsum stöðum í Vínarborg síðan.
Tónlistarferill
[breyta | breyta frumkóða]2006–2007: Starmania og Jetzt anders!
[breyta | breyta frumkóða]Árið 2006 tók Neuwirth þátt í þriðju þáttaröð Austurríska hæfileikaþáttarins Starmania og endaði í öðru sæti. (Nadine Beiler varð í fyrsta sæti). Ári síðar stofnaði Neuwirth strákabandið Jetzt anders! sem hætti sama ár.
2011–2012: Die große Chance og Eurovision 2012
[breyta | breyta frumkóða]Árið 2011 kom persónan Conchita Wurst fyrst fram í þættinum Die große Chance sem sýndur var á ORF sjónvarpsstöðinni. Hún varð í öðru sæti í austurrísku Eurovision keppninni árið 2012.
2013–2014: Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014
[breyta | breyta frumkóða]Þann 10. September 2013 var það tilkynnt af austurríska ríkissjónvarpinu ORF að Wurst myndi keppa fyrir hönd Austurríkis í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014 sem haldin yrði í Kaupmannahöfn í Danmörku. Valið á Wurst olli miklum ágreiningi í Austurríki. Fjórum dögum eftir að ORF sjónvarpsstöðin hafði tilkynnt flytjandann voru fleiri en 31.000 manns búnir að líka við "Anti-Wurst" Facebook síðu. Í október kom fram beðni til BTRC, ríkissjónvarps Hvíta-Rússlands um að þurrka flutning Conchitu úr útsendingunni. Beiðnin hélt því fram að hún myndi breyta Eurovision í algera Sódómu. Í desember kom fram svipuð beiðni í Rússlandi. Og í mars 2014 kom lag Conchitu Wurst út, "Rise Like a Phoenix". Lagið komst áfram í fyrri undanúrslitunum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014 þann 8. maí. Conchita vann svo glæsilegan sigur með 290 stig.
Útgefið efni
[breyta | breyta frumkóða]Smáskífur
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Titill | Hæsta sæti á metsölulista eftir löndum | Plata | |||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Austurríki |
Belgía |
Danmörk |
Þýskaland |
Írland |
Holland |
Svíþjóð |
Sviss |
Bretland | ||||||||||
2011 | "Unbreakable" | 32 | — | — | — | — | — | — | — | — | Ekki gefið út á plötu | |||||||
2012 | "That's What I Am" | 12 | — | — | — | — | — | — | — | — | ||||||||
2014 | "Rise Like a Phoenix" | 1 | 8 | 6 | 5 | 10 | 3 | 27 | 2 | 17 | ||||||||
"—" merkir að smáskífa komst ekki á metsölulista eða var ekki gefið út í því landi. |
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
- Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014
- Austurríki í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Conchita Wurst“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 11. maí 2014.