Þórhallur Bjarnarson
Þórhallur Bjarnarson (2. desember 1855 - 15. desember 1916) var biskup íslensku Þjóðkirkjunnar frá 1908 til 1916 og alþingismaður.
Hann var fæddur í Laufási við Eyjafjörð, sonur séra Björns Halldórssonar og konu hans Sigríðar Einarsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1877 og guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1883. Hann var prestur í Reykholti og prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1884 til 1885. Fékk Akureyri í brauðaskiptum við séra Guðmund Helgason 1885. Varð kennari við Prestaskólann 1885 og forstöðumaður hans 1894. Hann var alþingismaður Borgfirðinga 1894-1900 og 1902-1908, fyrst utanflokka en síðan fyrir Heimastjórnarflokkinn. Einnig sat hann í bæjarstjórn Reykjavíkur 1888-1906. Árið 1908 var hann skipaður biskup yfir Íslandi og gegndi því embætti til dauðadags.
Þórhallur bjó lengst af í Laufási við Laufásveg í Reykjavík og rak þar blómlegan búskap. Kona hans var Valgerður Jónsdóttir (27. janúar 1863 - 28. janúar 1913), fósturdóttir Tryggva Gunnarssonar bankastjóra og alþingismanns. Börn þeirra voru Tryggvi forsætisráðherra, Svava, Björn og Dóra, kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Íslands.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „Æviágrip á vef Alþingis“.
- Þórhallur biskup Bjarnarson, æfisaga. Magnús Helgason skólastjóri, Andvari 1. janúar 1917, bls. 1–27.
- Laufásættin. Guðjón Friðriksson, Heimsmynd 1. maí 1990, bls. 72–80 og 94–97.
Fyrirrennari: Hallgrímur Sveinsson |
|
Eftirmaður: Jón Helgason |