Ufsi
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: óljóst með heiti, er það ufsi (tegund) eða ufsi (ættkvísl) |
Ufsi (fræðiheiti:Pollachius) er fiskur af þorskaætt. Á íslensku heita tegundirnar tvær sem tilheyra ættkvíslinni annars vegar ufsi (Pollachius virens) og hins vegar lýr (Pollachius pollachius). Ufsi er algengur allt í kringum Ísland en lýr fremur sjaldgæfur.
Ufsi | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lýr (Pollachius pollachius)
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir | ||||||||||||
Ufsi er líka heiti á fiskum af annarri ættkvísl þorskaættar, Theragra, en þær tvær tegundir sem tilheyra þeirri ætt eru kallaðar Alaskaufsi og Noregsufsi.
Ufsi við strendur Íslands
breytaHeimkynni
breytaUfsinn er í kringum allt landið en er mun algengari í hlýja sjónum sunnan og suðvesturlands en undan Norður- og Austanlandi. Ufsi er mjög hreyfanlegur fiskur og mjög háður umhverfisaðstæðum. Hann er ýmist uppsjávar- eða botnfiskur. Hann hefur fundist á 450 metra dýpi en heldur sig aðallega frá yfirborði og niður á 200 metra dýpi. Hann heldur sig í 4-12°C nema í Barentshafi þar sem hann finnst við 2°C. Ufsinn fer oft um hafið í stórum torfum í ætisleit og merkingar sýna að mikill flækingur er á honum.[1]
Fæða
breytaFæða ufsans er breytanleg eftir stærð og svæðum, Eftir að seiðin losna við kviðpokann éta þau fyrst smákrabbadýr og fisklirfur en síðan einkum burstorma, rifhveljur, krabbadýr, krabbaflær og ljósátu sem er yfirgnæfandi hjá uppvaxandi. Meðalstór ufsi (70 cm) étur aðallega smáskeljar, hrogn og skeljar. Fullorðinn ufsi étur ljósátu, fiskseiði og ýmsa litla fiska eins og loðnu og síld. Stærsti ufsinn étur gjarnan smokkfisk.[1]
Óvinir
breytaHelstu óvinir eru sníkjudýr, hringormar, bandormar, krabbadýr og fleira. Hákarlar, selir og tannhvalir éta fullorðna fiskinn. Ungfiskar og seiði verða stærri fiskum og fuglum að bráð. Hrogn og lirfur verða smákrabbadýrum, hveljum og pílormum að bráð.[1]
Afli
breytaUfsaafli við Ísland var 50 þúsund tonn árið 2012, en hefur farið minnkandi frá árinu 2006 þegar veidd voru 78 þúsund tonn. Sjá mynd úr skýrslu Hafró til nánari upplýsingar.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 Karl Gunnarsson, Gunnar Jónsson, Ólafur Karvel Pálsson (1998). Sjávarnytjar við Ísland. Mál og menning. bls. 184-187.
- ↑ Hafró. „Nytjastofnar sjávar 2012-2013“ (PDF). Ufsi. Sótt 5.11 2013.