Sigrún Edda Björnsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir (f. 30. ágúst 1958) er íslensk leikkona og leikstjóri.
Foreldrar Sigrúnar Eddu eru Guðrún Ásmundsdóttir (f. 1935) leikkona og Björn Björnsson (1933-2008) flugvirki. Sigrún Edda á tvö börn og maki hennar er Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndahönnuður.
Sigrún Edda útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1981. Hún var leikari í Þjóðleikhúsinu frá 1981-1985 og hjá Alþýðuleikhúsinu 1982-1984. Hún hefur verið fastráðin hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1981-1982, 1985-1996 og frá 1998.[1] Einnig hefur hún tekið þátt í sýningum Vesturports og Íslenska dansflokksins.[2]
Hún hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta, sjónvarpsleikrita, útvarpsleikrita og kvikmynda og leikstýrt á sviði, í útvarpi og sjónvarpi auk þess sem hún hefur skrifað handrit fyrir sjónvarp. Hún er höfundur barnabókarinnar Með Bólu í bæjarferð (2001) og sjónvarpsþáttanna Bóla (1991-2001).[1]
Sigrún Edda hefur þrisvar sinnum hlotið Grímuverðlaunin fyrir leik í aðalhlutverki[2] og í janúar árið 2021 var hún sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu.
Ferill í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
breytaÁr | Kvikmynd/Þáttur | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
1977 | Morðsaga | Frú B | |
1980 | Óðal feðranna | Stelpa á útimóti | |
1984 | Atómstöðin | Guðný Árland | |
1985 | Fastir liðir: eins og venjulega | Erla | |
1990 | Sérsveitin laugarnesvegi 25 | ||
1995 | Einkalíf | Sísí, móðir Alexanders | |
2001 | Áramótaskaupið 2001 | ||
2004 | And Björk of Course | ||
2005 | Galdrabókin | ||
2010 | Réttur 2 | ||
2014 | Afinn | ||
2015 | Ófærð | ||
2016 | Eiðurinn | ||
2017 | Fangar | ||
2020 | Gullregn | Indíana Jónsdóttir |
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Pétur Ástvaldsson, Samtíðarmenn J-Ö bls. 710, (Reykjavík, 2003)
- ↑ 2,0 2,1 Modurskipid.is, „Sigrún Edda Björnsdóttir“ (skoðað 11. janúar 2021)