Dragóni
Dragónar voru upphaflega fótgönguliðar sem fengið höfðu þjálfun í reiðmennsku og notuðust við hesta til að ferðast milli orrusta en börðust annars á fæti. Dragónar voru algengir í herjum Evrópu frá 17. öld til 19. aldar. Á 18. öld breyttust dragónar í léttvopnað riddaralið. Í dag koma dragónar aðallega fyrir sem heiðursvörður.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist dragónum.