1657
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1657 (MDCLVII í rómverskum tölum) var 57. ár 17. aldar sem hófst á mánudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en fimmtudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Atburðir
breyta- Janúar - Meirekibruninn í Japan eyðilagði stærstan hluta borgarinnar Jedó (nú Tókýó). Um hundrað þúsund létu lífið í brunanum.
- 8. janúar - Miles Sindercombe og fleiri sem ætluðu sér að myrða Oliver Cromwell voru handteknir í London.
- Febrúar - Enski sjóliðsforinginn Robert Blake vann sigur á flota Spánverja í orrustu um Jamaíku sem Englendingar höfðu áður hernumið.
- 16. mars - Miklir jarðskjálftar riðu yfir Suðurland og féllu hús víða, en mest í Fljótshlíð.
- 3. apríl - Oliver Cromwell tók sér titilinn Lávarður samveldis Englands, Skotlands og Írlands.
- 20. apríl - Robert Blake sigraði spænska silfurflotann við Santa Cruz de Tenerife.
- 10. maí - Gísli Þorláksson var vígður Hólabiskup.
- 1. júní - Karls Gústafsstríðið í Danmörku hófst með því að Friðrik 3. Danakonungur lýsti Svíum stríð á hendur. Karl 10. Gústaf lagði Jótland undir sig.
Ódagsett
breyta- Galdramál: Magnús Jónsson í Miðhlíð, sýslumaður Barðastrandarsýslu var borinn galdraáburði sem hann sór af sér og kærði á móti Runólf Þorvaldsson fyrir meðferð galdrastafa.
- Stokkhólmsbanki var stofnaður.
- Fyrsta súkkulaðibúðin var opnuð í Englandi.
Fædd
breyta- 11. júlí - Friðrik 1. Prússakonungur (d. 1713).
Ódagsett
breyta- Guðmundur Bergþórsson, íslenskt skáld (d. 1705).
Dáin
breyta- 2. apríl - Ferdinand 3. keisari hins heilaga rómverska ríkis (f. 1603).
- 3. júní - William Harvey, enskur læknir (f. 1578).
Ódagsett
breyta- Höskuldur Einarsson prófastur í Þingmúla og Heydölum (f. 1572).